1. gr.
Hvar sem orðið "Umferðarstofa", í hvaða beygingarfalli sem er, kemur fyrir í reglugerðinni, komi í viðeigandi beygingarfalli: Samgöngustofa.
2. gr.
"INNGANGUR, GILDISSVIÐ OG MARKMIÐ" breytist þannig:
Ný málsgrein komi í lok ákvæðisins, sem orðist svo:
Hvar sem í reglugerðinni er kveðið á um að tiltekið atriði teljist fullnægjandi ef það uppfyllir ákvæði ESB-gerðar, skal samsvarandi UN-ECE reglugerð einnig teljast fullnægjandi, ef slíkt kemur fram í töflu viðauka II.
3. gr.
1. gr. breytist þannig:
a. Ákvæði 01.72 (1) breytist þannig að í stað núverandi skilgreiningar á Torfæruhjóli III, komi ný skilgreining sem orðast svo:
III: Torfæruhjól á fjórum hjólum búið: |
||
a. |
brunahreyfli með slagrými ekki yfir 50 sm³ og með neistakveikju (rafkveikju) eða |
|
b. |
öðrum brunahreyfli með hámarksnettóaflsafköst sem fer ekki yfir 4 kW eða |
|
c. |
rafhreyfli með samfellt hámarksnafnafl sem fer ekki yfir 4 kW. |
b. Á eftir ákvæði 01.105 bætist við nýtt ákvæði, sem orðast svo:
01.106 |
Ökutæki til ökukennslu. |
(1) |
Ökutæki sem notað er til ökukennslu og uppfyllir kröfur IV. viðauka reglugerðar um ökuskírteini nr. 830/2011, með áorðnum breytingum. |
4. gr.
5. gr. breytist þannig:
Í ákvæði 05.20 (2) skal í stað "bifhjól III-V" koma: bifhjól í flokki L5e, L6e og L7e.
5. gr.
6. gr. breytist þannig:
a. Í ákvæði 06.20 (5) skal í stað "bifhjól II-V" koma: bifhjól í flokki L4e, L5e, L6e og L7e.
b. Í ákvæði 06.20 (6) skal í stað "bifhjól II-V" koma: bifhjól í flokki L4e, L5e, L6e og L7e.
c. Í ákvæði 06.22 (1) skal í stað "þungu bifhjóli I og II" koma: bifhjóli í flokki L3e og L4e.
d. Í ákvæði 06.22 (2) skal í stað "þungu bifhjóli III-V" koma: bifhjóli í flokki L5e, L6e og L7e.
6. gr.
7. gr. breytist þannig:
a. Í ákvæði 07.20 (1) skal í stað "bifhjól II-V" koma: bifhjól í flokki L4e, L5e, L6e og L7e.
b. Í ákvæði 07.20 (4) skal í stað "bifhjóli II-V" koma: bifhjóli í flokki L4e, L5e, L6e og L7e.
c. Í ákvæði 07.20 (5) skal í stað "bifhjól II-V" koma: bifhjól í flokki L4e, L5e, L6e og L7e.
d. Í ákvæði 07.22 (1) skal í stað "þungt bifhjól II-V" koma: bifhjól í flokki L4e, L5e, L6e og L7e.
7. gr.
9. gr. breytist þannig:
a. Í ákvæði 09.20 (2) skal í stað "bifhjóli II-V" koma: bifhjóli í flokki L4e, L5e, L6e og L7e.
b. Í ákvæði 09.22 (1) skal í stað "bifhjól II-V, sbr. lið 01.22" koma: bifhjóli í flokki L4e, L5e, L6e og L7e.
8. gr.
18. gr. breytist þannig:
a. Í ákvæði 18.21 (3) skal í stað "Létt bifhjól I og II (L1e og L2e)" koma: Létt bifhjól í flokki L1e og L2e.
b. Í ákvæði 18.22 (1) skal í stað "Þungt bifhjól I og II (L3e og L4e)" koma: Bifhjól í flokki L3e og L4e.
c. Í ákvæði 18.22 (1) skal í stað "Þungt bifhjól III, IV og V (L5e, L6e og L7e)" koma: Bifhjól í flokki L5e, L6e og L7e.
9. gr.
24. gr. breytist þannig:
Ákvæði 24.10 (3) orðist svo:
Öryggis- og verndarbúnaður barna skal uppfylla kröfur samkvæmt reglum efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu, UN-ECE-reglur nr. 44.04, sbr. og tilskipun 77/541/EBE um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi öryggisbelti og aðhaldsbúnað í vélknúnum ökutækjum að tækniframförum, með síðari uppfærslum reglnanna og tilskipunarinnar.
10. gr.
Núverandi viðauki II fellur brott og í stað hans kemur nýr viðauki II, sem birtur er með reglugerð þessari.
11. gr.
Viðauki IV breytist þannig:
Undir fyrirsögninni "bifreiðar og eftirvagnar":
a. Í tölulið 45zu við tilskipun 692/2008/EB á eftir tilskipun 459/2012/ESB (í reitina "síðari viðbætur", "Stjórnartíðindi EB" og "EES-birting"), komi:
630/2012/ESB |
L 182, 13.7.2012 |
Birt í EES-viðbæti nr. 28, 16.5.2013, bls. 439. |
143/2013/ESB |
L 47, 20.2.2013 |
Birt í EES-viðbæti nr. 56, 10.10.2013, bls. 1212. |
b. Í tölulið 45zx við tilskipun 2007/46/EB á eftir tilskipun 65/2012/ESB (í reitina "síðari viðbætur", "Stjórnartíðindi EB" og "EES-birting"), kemur:
1229/2012/ESB |
L 353, 21.12.2012 |
Birt í EES-viðbæti nr. 37, 27.6.2013, bls. 13. |
143/2013/ESB |
L 47, 20.2.2013 |
Birt í EES-viðbæti nr. 56, 10.10.2013, bls. 1212. |
Undir fyrirsögninni "dráttarvélar":
a. Í tölulið 19 við tilskipun 86/297/EBE á eftir tilskipun 2010/62/ESB (í reitina "síðari viðbætur", "Stjórnartíðindi EB" og "EES-birting"), komi:
2012/24/ESB |
L 274, 09.10.2012 |
Birt í EES-viðbæti nr. 28, 16.5.2013, bls. 195. |
b. Í tölulið 23 við tilskipun 2009/144/EB á eftir tilskipun 2010/62/ESB (í reitina "síðari viðbætur", "Stjórnartíðindi EB" og "EES-birting"), komi:
2013/8/ESB |
L 56, 28.02.2013 |
Birt í EES-viðbæti nr. 56, 10.10.2013, bls. 490. |
12. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 60. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 13. nóvember 2013.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)