1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður e, sem orðast svo:
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1163/2009 frá 30. nóvember 2009 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 417/2002 um að flýta innleiðingu á kröfum um tvöfaldan byrðing eða sambærilega hönnun fyrir olíuflutningaskip með einföldum byrðingi, sem vísað er til í 56m í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2010 frá 1. október 2010 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1163/2009 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 27. janúar 2011, bls. 106 og verður hluti af reglugerð þessari.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 6. mgr. 3. gr. laga nr. 47/2003 um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 1. apríl 2011.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.