417/2010
Reglugerð um breytingu á reglugerð um gjöld og þóknanir sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
2. gr. orðist svo:
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB), með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 593/2007 frá 31. maí 2007 um gjöld og þóknanir sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2007 frá 7. desember 2007. Reglugerðin er jafnframt birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, 14. maí 2009, bls. 577.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1356/2008 frá 23. desember 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 593/2007 um þóknanir og gjöld sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2009 frá 4. desember 2009. Reglugerðin er jafnframt birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 21, 29. apríl 2010, bls. 118.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 29. apríl 2010.
Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.