Í stað "I og II" í 2. málsl. 1. mgr. 1. gr. komi: I, II, III og IV.
1. mgr. 5. gr. orðist svo:
Breidd bifreiðar og eftirvagns má mest vera 2,55 m. Breidd yfirbyggingar jafnhitavagns má mest vera 2,60 m.
10. gr. orðist svo:
Skráningarstofan hf. getur veitt undanþágu frá ákvæðum um mestu lengd vagnlesta, allt að 25,25 metrum , þar sem hagkvæmt þykir vegna almennra flutninga.
Skilyrði fyrir útgáfu undanþágu er:
a. | Vagnlestinni skal vera hægt að aka innan snúningsboga með 12,50 m radíus í ytri hring og 2,00m radíus í innri hring. Ákvæði þetta telst vera uppfyllt fyrir bifreiðog tengivagn ef fjarlægð frá framenda bifreiðar að miðju aftasta áss tengivagns er ekki meiri en 22,50 m og mál frá miðju snúningskrans tengivagns til miðju fræðilegs afturáss er ekki meiri en 8,15 m. |
b. | Lengd farmrýmis eftirvagns má ekki vera meiri en 13,60 m. |
c. | Bifreið og eftirvagn skulu búin hemlum með læsivörn. |
d. | Bifreið skal búin hraðatakmarkara sem er stilltur þannig að hraði geti ekki orðið meiri en 90 km/klst. |
e. | Aftan á eftirvagni skal vera merki með áletruninni "UNDANÞÁGA VEGNA LENGDAR" og merki sem sýnir leyfðan hámarkshraða vagnlestar, sbr. viðauka III. |
Leyfi skal vera skriflegt og haft meðferðis meðan á flutningi stendur.
Leyfi skal bundið við þá vegi og þann tíma sem greinir í viðauka IV. Lögreglustjóri getur takmarkað umferð vagnlesta umfram það sem þar greinir ef sérstaklega stendur á. Um aðra vegi og tíma gilda ákvæði 10. gr. a um undanþágu vegna sérstakra flutninga.
Brot á skilyrðum fyrir undanþágu getur varðað afturköllun leyfis.
Undanþágu má gefa lengst út til 15. nóvember 2003. Undanþágur samkvæmt greininni má afturkalla ef ástæða þykir til vegna umferðaröryggis.
10. gr. verður 10. gr. a.
Við greinina bætist ný málsgrein, svo hljóðandi:
Brot á skilyrðum fyrir undanþágu getur varðað afturköllun leyfis.
Viðauki III breytist eins og segir í viðauka I.
Við bætist nýr viðauki, viðauki IV, eins og segir í viðauka II.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 75. og 76. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, öðlast gildi 15. nóvember 2001.
Viðauki III orðist svo:
a. | Skiltið "LANGT ÖKUTÆKI" skal vera ferhyrnt. Grunnur skiltis skal vera gulur, jaðar rauður og stafir svartir. Lengd skiltisins skal að lágmarki vera 900 mm með a.m.k. 25 mm jaðri. Hæð stafa skal vera a.m.k. 70 mm og breidd stafleggja a.m.k. 11 mm. Leturgerðin skal vera blokkskrift. |
b. | Skiltið "UNDANÞÁGA VEGNA LENGDAR" skal vera ferhyrnt. Grunnur skiltis skal vera gulur, jaðar rauður og stafir svartir. Lengd skiltisins skal að lágmarki vera 900 mm með a.m.k. 25 mm jaðri. Hæð stafa skal vera a.m.k. 70 mm og breidd stafleggja a.m.k. 11 mm. Leturgerðin skal vera blokkskrift. |
c. | Skilti um leyfðan hámarkshraða skal vera hringlaga, 200 mm að þvermáli og með svörtum jaðri. Tölustafirnir skulu vera svartir og hæð þeirra 120 mm. Leturgerðin skal vera blokkskrift. Áletrun skal vera "80". |
Nýr viðauki, viðauki IV, orðist svo:
Undanþága fyrir vagnlestir (vegir og tími) samkvæmt 10. gr.
a. | Um helgar frá kl. 18.00 á föstudegi til kl. 24.00 á sunnudegi og á almennum frídögum frá kl. 00.00 til kl. 24.00. |
b. | Um páska frá kl. 00.00 á miðvikudegi fyrir páska til kl. 08.00 á þriðjudegi eftir páska, um hvítasunnu og verslunarmannahelgi frá kl. 00.00 á föstudegi til kl. 08.00 á þriðjudegi og um jól frá kl. 00.00 á aðfangadegi til kl. 08.00 þriðja í jólum. |
1
|
Hringvegi, þó ekki frá Mývatnsvegi (848) hjá Arnarvatni að Kísilvegi (87) hjá Reykjahlíð og frá Egilsstöðum að Suðurfjarðavegi (96) við Breiðdalsvík
|
38
|
Þorlákshafnarvegi, frá Þorlákshöfn að Þrengslavegi (39)
|
39
|
Þrengslavegi
|
40
|
Hafnarfjarðarvegi
|
41
|
Reykjanesbraut
|
43
|
Grindavíkurvegi
|
44
|
Hafnavegi
|
45
|
Garðskagavegi
|
46
|
Víknavegi
|
49
|
Nesbraut, frá Hringvegi (1) að Reykjanesbraut (41) við Ánanaust
|
413
|
Breiðholtsbraut
|
419
|
Höfðabakka, frá Nesbraut (49) að Reykjanesbraut (41)
|
421
|
Vogavegi
|
425
|
Nesvegi
|
453
|
Sundagörðum
|
454
|
Holtagörðum
|
470
|
Fjarðarbraut, þó ekki frá Norðurbakka að Fornubúðum
|
4540
|
Víðinesvegi, frá Hringvegi (1) að Sorpu
|
51
|
Akrafjallsvegi
|
54
|
Snæfellsnesvegi, frá Hringvegi (1) að Vatnaleið (56) við Vegamót og frá Útnesvegi (574) við Fróðá að Stykkishólmsvegi (58)
|
56
|
Vatnaleið
|
58
|
Stykkishólmsvegi
|
574
|
Útnesvegi, frá Rifi að Snæfellsnesvegi (54) við Fróðá
|
72
|
Hvammstangavegi
|
74
|
Skagastrandarvegi
|
75
|
Sauðárkróksbraut
|
76
|
Siglufjarðarvegi, frá Sauðárkróksbraut (75) til Siglufjarðar
|
82
|
Ólafsfjarðarvegi, frá Hringvegi (1) til Ólafsfjarðar
|
83
|
Grenivíkurvegi
|
85
|
Norðausturvegi, frá Hringvegi (1) til Húsavíkur
|
845
|
Aðaldalsvegi
|
848
|
Mývatnsvegi
|
87
|
Kísilvegi
|
93
|
Seyðisfjarðarvegi
|
92
|
Norðfjarðarvegi
|
96
|
Suðurfjarðavegi.
|
Auk þess gildir undanþágan á eftirtöldum götum íReykjavík:
Sægörðum, Kleppsmýrarvegi, Skútuvogi, Grandagarði og Faxagötu.