1. gr.
Í stað orðanna "406 og 121,5 MHz" í 5. mgr. 2. gr. kemur: 406 MHz.
2. gr.
Í stað orðanna "406 og/eða 121,5 MHz" í 18. mgr. 2. gr. kemur: 406 MHz.
3. gr.
Í stað orðanna "406 og 121,5 MHz" í g-lið 6. gr. kemur: 406 MHz.
4. gr.
Í stað orðanna "406/121,5 MHz" í e-lið 6. gr. kemur: 406 MHz.
5. gr.
Í stað orðanna "406 og 121,5 MHz" í i-staflið c-liðar 8. gr. kemur: 406 MHz.
6. gr.
Í stað orðanna "406/121,5 MHz" í i-staflið d-liðar 1. mgr. 9. gr. og i-staflið d-liðar 2. mgr. 9. gr. kemur: 406 MHz.
7. gr.
Í stað orðanna "406/121,5 MHz" í d-lið 10. gr. kemur: 406 MHz.
8. gr.
Í stað orðanna "406 eða 121,5 MHz" í 1. mgr. 18. gr. kemur: 406 MHz.
9. gr.
Í stað orðanna "406/121,5 MHz" í 3. mgr. 18. gr. kemur: 406 MHz.
10. gr.
Í stað orðanna "406/121,5 MHz" í d-lið 20. gr. kemur: 406 MHz.
11. gr.
Í stað orðanna "406/121,5 MHz" í b-lið 21. gr. kemur: 406 MHz.
12. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 3. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003, öðlast þegar gildi. Við næstu búnaðarskoðun skipa, en eigi síðar en 1. febrúar 2009, skal þess gætt að þau séu búin frífljótandi neyðarbaujum sem senda út á 406 MHz. Við næstu þjónustuskoðun gúmmíbjörgunarbáta, en eigi síðar en 1. febrúar 2009, skal þess gætt að þau séu búin neyðarsendum sem senda út á 406 MHz.
Samgönguráðuneytinu, 29. september 2008.
Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.