1. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Gildissvið.
Reglugerð þessi tekur til alls almannaflugs með íslenskum og erlendum flugvélum sem fljúga um íslenska lofthelgi, sem ekki falla undir kröfur reglugerðar (EB) nr. 216/2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu. Reglugerðin tekur einnig til almannaflugs íslenskra flugvéla í millilandaflugi, sem ekki falla undir kröfur reglugerðar (EB) nr. 216/2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu, nema öðruvísi sé fyrir mælt í lögum, reglugerðum, og/eða verklagsreglum þeirra ríkja þar sem starfræksla fer fram.
2. gr.
Á eftir orðinu, "Flugstjóri" í lið 1.4 í I. viðauka við reglugerðina bætist við:
eða aðrir sem tilkynningarskylda hvílir á
3. gr.
Liður 4.12 Neyðarsendir í I. viðauka við reglugerðina, orðast svo:
4.12 Neyðarsendir.
a) Flugvélar skulu búnar eftirfarandi:
1) neyðarsendi (ELT) af hvaða gerð sem er, með sérstakt lofthæfivottorð sem gefið var út í fyrsta sinn 1. júlí 2008, eða fyrr,
2) sjálfvirkum neyðarsendi, ef sérstakt lofthæfivottorð var gefið út í fyrsta sinn eftir 1. júlí 2008, eða
3) neyðarsendi fyrir þá sem komast af (ELT(S)) eða neyðarsendi fyrir einstaklinga (PLB), sem flugverji ber eða farþegi, ef flugvélin hefur skráðan hámarksfjölda í sætafyrirkomulagi fyrir sex eða færri.
b) Neyðarsendar af hvaða gerð sem er og neyðarsendar fyrir einstaklinga (PLB) skulu geta sent út samtímis á 121,5 MHz og 406 MHz tíðni.
4. gr.
Liður 6.1 Gildissvið, í I. viðauka við reglugerðina, fellur brott.
5. gr.
Liður 6.2 a) 4. í I. viðauka við reglugerðina breytist þannig að orðið "samþykkta" fellur brott.
Liður 6.2 e) í I. viðauka við reglugerðina fellur brott.
6. gr.
Liður 6.3 b) í I. viðauka við reglugerðina orðast svo:
b) lagfæra samkvæmt viðhaldsgögnum, hvers kyns bilanir og skemmdir sem hafa áhrif á öryggi í starfrækslu. Fyrir öll stór loftför skal hafa hliðsjón af listanum yfir lágmarksbúnað og listanum yfir leyfð frávik í ytri búnaði loftfars fyrir flug, ef við á, fyrir viðkomandi tegund flugvélar.
Liður 6.3 c) í I. viðauka við reglugerðina breytist þannig að orðið "samþykkta" fellur brott.
7. gr.
Liður 6.4 Viðhaldsáætlun í I. viðauka við reglugerðina orðast svo:
6.4 Viðhaldsáætlun.
a) Skipuleggja skal viðhald flugvélar í samræmi við viðhaldsáætlun hennar.
b) Viðhaldsáætlunin og síðari breytingar á henni skulu hljóta samþykki Samgöngustofu, nema skilyrði d) liðar séu uppfyllt.
c) Viðhaldsáætlun flugvélar skal uppfylla kröfur um viðhaldsáætlun sem á við þá tilteknu flugvél, eins og kveðið er á um í Evrópureglugerð um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, ásamt síðari breytingum.
d) Að því er varðar flugvélar með hámarksflugtaksmassa (MTOM) sem er 2.000 kg eða minni og flokkast ekki sem flókið loftfar og sviffluga eða vélsviffluga með hámarksflugtaksmassa sem er 2.000 kg eða minni, er heimilt að útbúa viðhaldsáætlun með undirritaðri yfirlýsingu. Með slíkri yfirlýsingu lýsir eigandinn því yfir að um sé að ræða viðhaldsáætlun fyrir tiltekna skrásetningu loftfars og að hann beri fulla ábyrgð á innihaldi áætlunarinnar, einkum hvers konar frávikum sem innleidd eru með hliðsjón af tilmælum handhafa samþykkis fyrir hönnun viðgerðar. Skal viðhaldsáætlunin uppfylla kröfur um viðhaldsáætlun sem á við þá tilteknu flugvél, eins og kveðið er á um í Evrópureglugerð um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, ásamt síðari breytingum. Samgöngustofa skal útfæra sniðmát til að uppfylla þetta ákvæði.
e) Umráðandi flugvélar skal endurskoða viðhaldsáætlun árlega hið minnsta.
8. gr.
Við lið 6.6 í I. viðauka við reglugerðina bætist eftirfarandi málsgrein:
Samgöngustofa sker úr í vafaatriðum.
9. gr.
1. mgr. e) liðar 6.7 í I. viðauka við reglugerðina orðast svo:
Auk opinbers viðhaldsvottorðs, skal færa eftirfarandi upplýsingar, sem eiga við um alla ísetta íhluti (hreyfil, loftskrúfu, hreyfilhluta eða íhlut með tiltekinn endingartíma), inn í viðeigandi viðhaldsskrár hreyfils eða loftskrúfu eða í spjaldskrá hreyfilhluta eða íhluta með tiltekinn endingartíma:
2. töluliður e) liðar 6.7 orðast svo:
2) tegund, raðnúmer og skráningarmerki flugvélar, hreyfilsins, loftskrúfunnar, hreyfilhlutans, eða íhlutarins með tiltekinn endingartíma sem tiltekinn íhlutur sem settur er í hefur, ásamt tilvísun í ísetningu og úrtöku íhlutarins og
3. töluliður e) liðar 6.7 orðast svo:
3) dagsetning ásamt uppsöfnuðum heildarflugtíma og/eða notkunarskiptum í flugi og/eða lendingum og/eða almanaksdögum tiltekins íhlutar, eftir því sem við á, og
10. gr.
h) liður 6.7 í I. viðauka við reglugerðina orðast svo:
h) Rekstraraðili flugvélar skal sjá um að komið sé upp kerfi þar sem eftirfarandi er skráð og geymt svo lengi sem hér segir:
1. allar sundurliðaðar viðhaldsskrár yfir loftfarið og íhluti með tiltekinn endingartíma sem settir eru í það, þar til nýjar upplýsingar, sem eru sambærilegar að því er varðar umfang og nákvæmni, hafa komið í stað upplýsinganna sem þar er að finna en eigi skemur en í 36 mánuði eftir að viðhaldsvottorð hefur verið gefið út fyrir loftfarið eða íhlutinn og
2. heildartími notkunar loftfarsins og allra íhluta með tiltekinn endingartíma (klukkustundir, almanaksdagar, notkunarskipti og lendingar), í a.m.k. 12 mánuði eftir að loftfarið eða íhluturinn er endanlega tekinn úr umferð og
3. notkunartími (klukkustundir, almanaksdagar, notkunarskipti og lendingar) eftir því sem við á, frá síðasta reglubundna viðhaldi íhlutar með tiltekinn endingartíma, a.m.k. þar til farið hefur fram nýtt áætlað viðhald á íhlutnum jafn umfangsmikið og nákvæmt og hið fyrra og
4. gildandi staða samræmis við viðhaldsáætlun þannig að staðfesting fáist á því að samþykktri viðhaldsáætlun loftfara hafi verið framfylgt, a.m.k. þar til farið hefur fram nýtt reglubundið viðhald á loftfarinu eða íhlutnum, jafn umfangsmikið og nákvæmt og hið fyrra og
5. gildandi staða lofthæfifyrirmæla er varða loftfarið og íhlutina, í a.m.k. 12 mánuði eftir að loftfarið eða íhluturinn er endanlega tekinn úr umferð og
6. ítarleg lýsing á nýjustu breytingum og viðgerðum sem hafa farið fram á loftfari, hreyflum, loftskrúfum og öllum öðrum íhlutum sem eru nauðsynlegir vegna flugöryggis, í a.m.k. 12 mánuði eftir að þeir eru endanlega teknir úr umferð.
11. gr.
Liður 6.8 b) í I. viðauka við reglugerðina fellur brott.
12. gr.
Liður 6.10 í I. viðauka við reglugerðina breytist þannig:
Við a) lið bætist eftirfarandi málsgrein:
Enn fremur skal fara fram sérstök skoðun að loknum öllum viðhaldsverkefnum sem tengjast flugöryggi nema annað sé tekið fram eða samþykkt af Samgöngustofu.
Á eftir d) lið bætast við eftirfarandi liðir:
e) Ef um er að ræða slæmt veður eða langvarandi viðhald skal nota viðeigandi aðstöðu.
f) Framkvæma skal allt viðhald innan takmarkana sem varða umhverfið og eru tilgreindar í viðhaldsgögnunum í grein 6.9.
13. gr.
Við lið 6.11 í I. viðauka við reglugerðina bætast eftirfarandi liðir, auk þess sem bókstafurinn a) bætist framan við gildandi málsgrein:
b) Einungis viðurkenndir viðhaldsvottar geta ákvarðað, á grundvelli viðhaldsgagna samkvæmt grein 6.9, hvort bilun í loftfari stofni flugöryggi í hættu og þar með ákvarðað hvaða lagfæringar skuli gera fyrir frekara flug og hvenær og hvaða lagfæringum megi slá á frest. Þó gildir þetta ekki þegar:
1) flugmaðurinn notar listann yfir lágmarksbúnað sem Samgöngustofa hefur gefið fyrirmæli um eða
2) Samgöngustofa skilgreinir bilanir í loftfarinu sem þolanlegar.
c) Lagfæra skal allar bilanir í loftfari, sem stofna ekki flugöryggi í hættu, eins fljótt og gerlegt er eftir að bilunarinnar í loftfarinu verður fyrst vart og innan þeirra tímamarka sem tilgreind eru í viðhaldsgögnunum.
d) Allar bilanir, sem eru ekki lagfærðar fyrir flug, skal skrá í viðhaldsskrár loftfara samkvæmt grein 6.7 eða tækniflugbók eftir því sem við á.
14. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 22. mars 2018.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.