871/2015
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1077/2010 um flutning á hættulegum farmi á landi.
1. gr.
38. gr. reglugerðarinnar breytist þannig að aftan við d-lið 2. mgr. bætist nýr liður sem orðast svo:
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/103/ESB frá 21. nóvember 2014 um þriðju aðlögun á viðaukunum við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/68/EB um flutning á hættulegum farmi á landi og skipgengum vatnaleiðum að framförum á sviði vísinda og tækni sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55, frá 17. september 2015 á bls. 60.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 1. mgr. 60. gr. og 5. mgr. 73. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993, og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 17. september 2015.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Marta Jónsdóttir.