I. KAFLI
Breyting á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010.
1. gr.
1. málsliður 9. gr. orðast svo:
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi að undanskilinni grein 6.4 í viðauka I við reglugerðina sem tekur gildi 1. janúar 2016.
II. KAFLI
Breyting á reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.
2. gr.
9. gr. orðast svo:
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi að undanskilinni grein 6.4 í viðauka I við reglugerðina sem tekur gildi 1. janúar 2016.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglugerð nr. 1144/2012 um breytingu á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010 og reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010 og reglugerð nr. 627/1983, um lágmarksbúnað loftfara.
Innanríkisráðuneytinu, 10. desember 2014.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.