Innanríkisráðuneyti

578/2012

Reglugerð um Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

1. gr.

Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur umráðarétt yfir og annast fasteignir sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk.

Fasteignasjóðurinn tók við öllum réttindum og skyldum Framkvæmdasjóðs fatlaðra 1. janúar 2011 er tengjast fasteignunum, þ.m.t. réttindi vegna framlaga Framkvæmdasjóðs fatlaðra til sjálfseignarstofnana, félagasamtaka og sveitarfélaga.

Fasteignasjóðurinn hefur sjálfstæðan fjárhag og sjálfstæðar heimildir til ráðstöfunar eigna, sbr. 2. gr.

Tekjur Fasteignasjóðsins eru framlög úr sérdeild Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlaða og tekjur af sölu og leigu þeirra fasteigna sem sjóðurinn hefur umráðarétt yfir, sbr. 2. gr.

2. gr.

Heimildir Fasteignasjóðsins.

Fasteignasjóðnum er heimilt án sérstakra heimilda í fjárlögum að:

a)

Leigja sveitarfélögum, þjónustusvæðum, sbr. lög um málefni fatlaðra, og rekstrar- eða þjónustuaðilum fasteignir sjóðsins til afnota fyrir þjónustu við fatlað fólk. Frá 1. janúar 2012 er Fasteignasjóðnum heimilt að innheimta leigu vegna viðkomandi fasteigna.

b)

Selja sveitarfélögum, þjónustusvæðum, rekstrar- og þjónustuaðilum, rekstrar­félögum félagslegs húsnæðis eða íbúum fasteignir sjóðsins og semja um greiðslu­kjör.

c)

Selja fasteignir sjóðsins á frjálsum markaði hafi sveitarfélög eða þjónustusvæði ekki þörf fyrir að nýta þær.

d)

Ráðstafa söluandvirði fasteigna og öðrum tekjum Fasteignasjóðsins umfram gjöld til sérdeildar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og skulu fjármunirnir nýttir til jöfnunar vegna búsetuþjónustu við fatlað fólk.

e)

Fela sérhæfðum rekstraraðilum fasteigna í samráði við sveitarfélög og þjón­ustu­svæði umsýslu og daglegan rekstur fasteigna sjóðsins á viðkomandi svæði.



3. gr.

Ráðgjafarnefnd Fasteignasjóðsins.

Ráðherra skipar þriggja manna ráðgjafarnefnd Fasteignasjóðsins til fjögurra ára. Tveir nefndarmenn skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga en einn nefndarmaður skal skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndar­innar. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt.

Ráðgjafarnefndin fjallar um stefnumótandi ákvarðanir í rekstri Fasteignasjóðsins og hefur eftirlit með starfsemi hans. Ráðherra tekur ákvarðanir um sölu eigna og ráðstöfun sölu­andvirðis eignanna skv. 2. gr. að fengnum tillögum ráðgjafarnefndar Fasteigna­sjóðsins.

Kostnaður við störf ráðgjafarnefndar greiðist af Fasteignasjóði.

4. gr.

Staðfesting.

Vinnureglur sem ráðgjafarnefnd Fasteignasjóðsins setur og tillögur nefndarinnar um ráðstöfun fjármuna úr sjóðnum svo og úthlutanir framlaga vegna viðhalds á fasteignum sjóðsins á grundvelli þessarar reglugerðar skulu hljóta staðfestingu ráðherra.

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu og gildir til 30. júní 2013. Þá fellur jafnframt úr gildi reglugerð um Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, nr. 1067/2010.

Innanríkisráðuneytinu, 28. júní 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica