Eftirfarandi breytingar verði á 2. gr.:
Stafliður m orðist svo:
Fjármála- og verslunargreinum.
Eftirfarandi breytingar verði á 5. gr.:
1) 9. mgr. orðist svo:
Starfsgreinaráð rafiðngreina: 3 fulltrúar tilnefndir af Rafiðnaðarsambandi Íslands og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði.
2) 11. mgr. orðist svo:
Starfsgreinaráð uppeldis- og tómstundagreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 2 fulltrúar tilnefndir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og 1 fulltrúi tilnefndur af félagsmálaráðuneytinu.
3) 14. mgr. orðist svo:
Starfsgreinaráð snyrtigreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Samiðn, 1 fulltrúi tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins og 2 fulltrúar tilnefndir af Félagi íslenskra snyrtifræðinga.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996 og öðlast þegar gildi.