29/2025
Reglugerð um (43.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 117. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3145 frá 18. desember 2024 um breytingu á I., IX., X. og XV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd eða yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af tilteknum afurðum úr dýraríkinu til Sambandsins og um leiðréttingu á XXI. viðauka við hana að því er varðar færslurnar fyrir Bandaríkin.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðin sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 1/2025.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 2. janúar 2025.
Hanna Katrín Friðriksson
atvinnuvegaráðherra.