Matvælaráðuneyti

1411/2024

Reglugerð um (16.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 32. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2613 frá 23. nóvember 2023 um breyt­ingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar umbreytingarráðstafanir varðandi útflutning á kjöt- og beinamjöli sem eldsneyti til brennslu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2024 frá 5. júlí 20214. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 21. nóvember 2024, bls. 339.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 29. gr. a laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 29. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica