Matvælaráðuneyti

1303/2024

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 232/2023 um gildistöku framkvæmdarreglna framkvæmdastjórnarinnar um skráningar á landfræðilegum merkingum fyrir brennda drykki skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1311 frá 3. maí 2024 um færslu heitis í skrána yfir landfræðilegar merkingar fyrir brennda drykki ("Trenčianska borovička "JUNIPERUS"/Trenčianska borovička "JUNIPERIERS" - TRENČÍN DISTILLERY"). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 211/2024 frá 23. september 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 14. nóvember 2024, bls. 780.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 40. gr., sbr. 27. gr. laga um vernd afurðarheita sem vísa til upp­runa, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu, nr. 130/2014, og 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, og öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica