1302/2024
Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 237/2023 um gildistöku framkvæmdarreglna framkvæmdastjórnarinnar um vernd heita á víni skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013.
1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1216 frá 22. apríl 2024 um að veita heitinu "Wiener Gemischter Satz" (VUT) vernd skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 228/2024 frá 23. september 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 14. nóvember 2024, bls. 848.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1228 frá 23. apríl 2024 um að veita heitinu "Ruster Ausbruch" (VUT) vernd skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 228/2024 frá 23. september 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 14. nóvember 2024, bls. 849.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga um matvæli, nr. 93/1995.
Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.