1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2171 frá 7. desember 2021 um breytingu á tilskipun ráðsins 66/402/EBE að því er varðar þyngd framleiðslueiningar fræs og sýna af Avena nuda. Tilskipunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2022, frá 23. september 2022. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, 3. nóvember 2022, bls. 110.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 7. desember 2022.
Svandís Svavarsdóttir.
Iðunn María Guðjónsdóttir.