933/2022
Reglugerð um (40.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 194/2021, frá 9. júlí 2021, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1927 frá 5. nóvember 2021 um breytingu á I. og II. viðauka við tilskipun ráðsins 66/402/EBE að því er varðar kröfur um fræ hveitiblendinga sem eru framleidd með umfrymisbundinni karlófrjósemi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2022 frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 163.
- Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/746 frá 6. maí 2021 um breytingu á tilskipunum 2003/90/EB og 2003/91/EB að því er varðar aðferðarlýsingar vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna og grænmetistegunda í landbúnaði og um breytingu á tilskipun 2003/90/EB að því er varðar grasafræðiheiti plantna. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 167.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 23. júní 2022.
Svandís Svavarsdóttir.