334/2022
Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast einn nýr töluliður, 39. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/461 frá 16. mars 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 að því er varðar dagsetningu fyrir móttöku beiðna um viðurkenningu á eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum að því er varðar jafngildi samkvæmt fyrirkomulagi á innflutningi lífrænt ræktaðra vara sem byggist á reglugerð ráðsins (EB) nr. 834/2007. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 326/2021, frá 10. desember 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 17. febrúar 2022, bls. 697.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 3. mars 2022.
Svandís Svavarsdóttir.