1372/2021
Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 477/2017 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 28. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1325 frá 10. ágúst 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/977 að því er varðar gildistíma tímabundinna ráðstafana í tengslum við eftirlit með framleiðslu lífrænt ræktaðra vara. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 152.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2021.
Svandís Svavarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.