I. KAFLI
Breyting (2.) á reglugerð nr. 920/2021
um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2021/2022.
1. gr.
2. málsl. 1. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
II. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 742/2021 um tímabundið
bann við veiðum með fiskibotnvörpu út af Glettinganesi.
2. gr.
2. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
III. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 640/2021 um veiðar á makríl.
3. gr.
2. málsl. 9. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
IV. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 572/2021 um heimild
færeyskra skipa til síldveiða við Ísland á árinu 2021.
4. gr.
2. málsl. 10. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
V. KAFLI
Breyting (3.) á reglugerð nr. 288/2021 um hrognkelsaveiðar.
5. gr.
2. málsl. 15. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
VI. KAFLI
Breyting (3.) á reglugerð nr. 22/2021 um loðnuveiðar
grænlenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands fiskveiðiárið 2020/2021.
6. gr.
2. málsl. 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
VII. KAFLI
Breyting (2.) á reglugerð nr. 474/2020
um merkingu veiðarfæra og töpuð veiðarfæri.
7. gr.
2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Brot á ákvæðum þessarar reglugerðar varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.
VIII. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 964/2019 um veiðar á rækju.
8. gr.
11. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Brot á ákvæðum þessarar reglugerðar varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.
IX. KAFLI
Breyting (4.) á reglugerð nr. 963/2019 um veiðar með dragnót við Ísland.
9. gr.
2. málsl. 29. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
X. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 962/2019 um veiðar á íslenskri sumargotssíld.
10. gr.
2. málsl. 6. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XI. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 961/2019
um takmarkanir við veiðum með línu á djúpslóð.
11. gr.
2. málsl. 14. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XII. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 960/2019
um takmarkanir við veiðum með fiskibotnvörpu.
12. gr.
2. málsl. 18. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XIII. KAFLI
Breyting (2.) á reglugerð nr. 959/2019 um friðunarsvæði við Ísland.
13. gr.
2. málsl. 7. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XIV. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 958/2019 um friðun
þorsks, skarkola, blálöngu og steinbíts á hrygningartíma.
14. gr.
2. málsl. 9. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XV. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 633/2019 um veiðar á beitukóngi í gildrur.
15. gr.
2. málsl. 9. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XVI. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 90/2018 um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni.
16. gr.
3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XVII. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 462/2017 um veiðar á gulllaxi.
17. gr.
1. málsl. 5. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XVIII. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 456/2017
um bann við veiðum á háfi, hámeri og beinhárkarli.
18. gr.
1. málsl. 5. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XIX. KAFLI
Breyting (11.) á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla.
19. gr.
2. málsl. 1. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XX. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 188/2014 um gerð og
útbúnað meðaflaskilju við veiðar á uppsjávarfiski.
20. gr.
2. og 3. málsl. 4. gr. reglugerðarinnar falla brott.
XXI. KAFLI
Breyting (3.) á reglugerð nr. 470/2012 um veiðar á lúðu.
21. gr.
1. málsl. 6. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XXII. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 923/2010 um veiðar á skötusel í net.
22. gr.
2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XXIII. KAFLI
Breyting (3.) á reglugerð nr. 646/2007 um uppboðsmarkaði sjávarafla.
23. gr.
2. málsl. 25. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XXIV. KAFLI
Breyting (3.) á reglugerð nr. 115/2006 um þorskfisknet.
24. gr.
2. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XXV. KAFLI
Breyting (3.) á reglugerð nr. 696/2005 um bann
við kolmunnaveiðum við Þórsbanka án meðaflaskilju.
25. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Brot á ákvæðum þessarar reglugerðar varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
XXVI. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 766/2004
um bann við rækjuveiðum norður af Rifsbanka.
26. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Brot á ákvæðum þessarar reglugerðar varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
XXVII. KAFLI
Breyting (2.) á reglugerð nr. 55/2003 um leyfi til vinnslu afla um borð í skipum.
27. gr.
2. málsl. 1. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
XXVIII. KAFLI
Breyting (1.) á reglugerð nr. 54/2003 um mælingar
á vinnslunýtingu um borð í skipum sem vinna afla um borð.
28. gr.
2. málsl. 1. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
29. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 79/2005, um uppboðsmarkaði sjávarafla. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. september 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.