1145/2020
Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 31. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/977 frá 7. júlí 2020 um undanþágu frá reglugerð (EB) nr. 889/2008 og (EB) nr. 1235/2008 að því er varðar eftirlit með framleiðslu lífrænna vara vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2020, frá 25. september 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 29. október 2020, bls. 306.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. nóvember 2020.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.