559/2018
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 477/2017 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 22. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2273 frá 8. desember 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 889/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara að því er varðar lífræna framleiðslu, merkingu og eftirlit. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2018, frá 27. apríl 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33, frá 17. maí 2018, bls. 391.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. maí 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.