Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1048/2017

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. - Brottfallin

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 24. og 25. tölu., sem verða svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1842 frá 14. október 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 að því er varðar rafrænt skoðunarvottorð fyrir innfluttar lífrænar vörur og aðra tiltekna þætti og reglugerð (EB) nr. 889/2008 að því er varðar kröfur um rotvarðar eða unnar lífrænar vörur og sendingu upplýsinga. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 453.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2259 frá 15. desember 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglu­gerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. Reglugerðin var felld inn EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 158/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 472.

2. gr.

Á eftir 2. gr. koma þrjár nýjar greinar er orðast svo:

a. (2. gr. a)

Þar sem vísað er til reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 952/2013 í c-lið 1. mgr. 13. gr., b-lið 13. gr. og 1. mgr. 14. gr. skal tollstjóri beita íslenskum reglum í stað fyrrnefndrar reglu­gerðar Evrópusambandsins.

b. (2. gr. b)

Þar sem vísað er til reglugerðar ráðsins (EBE) nr. 2913/92 í 2. mgr. 14. gr. skal tollstjóri beita íslenskum reglum í stað fyrrnefndrar reglugerðar ráðsins.

c. (2. gr. c)

Eigi er skylt að fylla út EORI númer í skoðunarvottorðum í viðaukum V og VI.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbún­aðar­framleiðslu, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. nóvember 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica