1042/2017
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 477/2017 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 19. og 20. tölul., sem verða svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1842 frá 14. október 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 að því er varðar rafrænt skoðunarvottorð fyrir innfluttar lífrænar vörur og aðra tiltekna þætti og reglugerð (EB) nr. 889/2008 að því er varðar kröfur um rotvarðar eða unnar lífrænar vörur og sendingu upplýsinga. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 453.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/838 frá 17. maí 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 889/2008 að því er varðar fóður fyrir tiltekin lagareldisdýr úr lífrænu eldi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 482.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. nóvember 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Iðunn Guðjónsdóttir.