Prentað þann 10. apríl 2025
142/2023
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1444/2022 um togveiðar á kolmunna árið 2023.
1. gr.
Á eftir 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætast við tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Skipstjóri skal hafa samband við stjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands, sem sinnir verkefnum Eftirlitsstöðvarinnar, til staðfestingar á að honum sé heimilt að hefja veiðar.
Eftirlitsstöðin hefur eftirlit með að fjöldi íslenskra skipa við veiðar innan færeyskrar lögsögu fari ekki umfram þann leyfilega fjölda sem landstjórn Færeyja ákveður á hverjum tíma og að ekki séu fleiri en 15 íslensk skip samtímis á veiðum.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 3. gr. og 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 8. gr. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, 2. gr. og 9. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 6. febrúar 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.