1. gr.
Tilskipanir framkvæmdastjórnarinnar nr. 2006/124/EB og nr. 2006/127/EB, sem vísað er til í III. kafla I. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 75/2007, frá 7. júlí 2007, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, I. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Efnisákvæði tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2007/48/EB eru einnig tekin upp í reglugerðina samanber 4. gr.
2. gr.
Í stað þeirra tegunda sem taldar eru upp 1. viðauka, kafla II, Garðyrkjutegundir, undirkafla 1, Grænmetistegundir og matjurtir, í reglugerð nr. 301/1995 komi þær tegundir sem tilgreindar eru í I. viðauka þessarar reglugerðar.
3. gr.
Í stað 2. viðauka, kafla V, Garðyrkjujurtir í reglugerð nr. 301/1995 komi I. viðauki þessarar reglugerðar.
4. gr.
Í stað 9. viðauka reglugerðar nr. 301/1995 komi II. viðauki þessarar reglugerðar.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin tekur þegar gildi.
Landbúnaðarráðuneytinu, 26. október 2007.
Einar K. Guðfinnsson.
Baldur P. Erlingsson.
VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)