Veflestur er þjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá
Landbúnaðarráðuneyti

1216/2007

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á frjóeggjum og mysudufti. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III A og IV A við tollalög nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnúmer

kg

%

kr./kg

0407.0001

Frjóegg (af tegund Gallus domesticus)

01.01. - 31.12.08


ótilgr.


0


0

Úr 0404.9000

Mysuduft

01.01. - 31.12.08


ótilgr.


0


5

Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils.

3. gr.

Við innflutning á frjóeggjum (0407.0001) skal gætt ákvæða laga nr. 54/1990, um inn­flutning dýra, með síðari breytingum.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr., 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2008.

Landbúnaðarráðuneytinu, 11. desember 2007.

F. h. r.

Ólafur Friðriksson.

Arnór Snæbjörnsson.

Prenta reglugerð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica