1. gr.
Framan við orðin: "á lögbýli" í 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar komi orðið: "framleiðanda".
2. gr.
Orðin: "Ef fjöldi árskúa á lögbýli fer yfir 170 skerðast heildar gripagreiðslur um 25% fyrir hverjar 10 árskýr sem umfram eru, þannig að bú með fleiri en 200 árskýr nýtur ekki gripagreiðslna, eins og sjá má á eftirfarandi töflu:" í 3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar falli brott.
Í staðinn komi orðin: "Ef fjöldi árskúa framleiðanda á lögbýli fer yfir 170 skerðast heildar gripagreiðslur um 25% fyrir hverjar 10 árskýr sem umfram eru, þannig að framleiðandi með fleiri en 200 árskýr á lögbýli nýtur ekki gripagreiðslna, eins og sjá má á eftirfarandi töflu:".
Landbúnaðarráðuneytinu, 24. október 2006.
F. h. r.
Ólafur Friðriksson.
Atli Már Ingólfsson.