Landbúnaðarráðuneyti

948/2003

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á hvalaafurðum og rjúpum. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðauka IV A við tollalög nr. 55/1987, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.


2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara
Tímabil
Vörumagn
Verðtollur
Magntollur
Tollnúmer:
kg
%
kr./kg
0208.4001 Hvalkjöt, fryst
01.01 - 31.12.04
ótilgr.
0
0
0208.4002 Hvalaafurðir, ót.a., frystar
01.01 - 31.12.04
ótilgr.
0
0
0208.4003 Hvalkjöt og aðrar hvalaafurðir, nýtt eða kælt
01.01 - 31.12.04
ótilgr.
0
0
0208.9003 Rjúpur, frystar
01.01 - 31.12.04
ótilgr.
0
0


Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu, skal þó miða við dagsetningu hennar.


3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 416/2002 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.


4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


5. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2004.


Landbúnaðarráðuneytinu, 9. desember 2003.

F. h. r.
Guðmundur B. Helgason.
Atli Már Ingólfsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica