Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum III A og IV A, við tollalög nr. 55/1987, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 75. gr. laga nr. 99/1993.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Vara |
Tímabil
|
Vörumagn
|
Verðtollur
|
Magntollur
|
|
Tollnúmer: |
kg
|
%
|
kr./kg
|
||
0407.0000 | Frjóegg (af tegund Gallus domesticus) |
01.01.02-31.12.02
|
ótilgr.
|
0
|
77 |
0404.9000 | Annað (mysuduft) |
01.01.02-31.12.02
|
ótilgr.
|
0
|
5 |
Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu, skal þó miða við dagsetningu hennar.
Við innflutning á frjóeggjum (0407-0000) skal gætt ákvæða laga nr. 54/1990 um innflutning dýra.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 53. gr. og 70. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 53. gr., 53. gr. A og 75. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og gildir til 1. janúar 2003.