Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum III A og IV A við tollalög númer 55/1987 með síðari breytingum í samræmi við tillögur nefndar skv. 75. gr. laga nr. 99/1993.
Ákvæði eftirfarandi töflu a og b gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Tollnúmer: | Vara |
Tímabil
|
Vörumagn
|
Verðtollur
|
Magntollur
|
kg
|
%
|
kr./kg
|
|||
a) | |||||
0405.xxxx | Smjör og önnur fita |
01.07.01 - 30.06.02
|
53.000
|
0
|
267
|
b) | Ostur og ystingur: |
119.000
|
|||
0406.1000 | Nýr ostur, mysuostur o.fl. |
01.07.01 - 30.06.02
|
0
|
190
|
|
0406.2000 | Hvers konar rifinn eða mulinn ostur |
01.07.01 - 30.06.02
|
0
|
190
|
|
0406.3000 | Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn |
01.07.01 - 30.06.02
|
0
|
142
|
|
0406.4000 | Gráðostur |
01.07.01 - 30.06.02
|
0
|
218
|
|
0406.9000 | Annar ostur |
01.07.01 - 30.06.02
|
0
|
213
|
Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollnúmer þar sem vörumagn er ótilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil.
Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu skal þó miða við dagsetningu hennar.