REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 188/1988 um slátrun, mat og meðferð
sláturafurða, sbr. breytingu með rg. nr. 118/1994.
1. gr.
Í stað dagsetningarinnar 1. nóvember í c-lið 2. tl. 17. gr. reglugerðarinnar komi 20. október.
2. gr.
Í stað dagsetningarinnar 15. október í 4. tl. 17. gr. reglugerðarinnar komi 20. október.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 30 28. apríl 1966 um meðferð, skoðun og mat á sláturafurðum og öðlast þegar gildi.
Landbúnaðarráðuneytið, 14. september 1994.
F.h.r.
Sveinbjörn Dagfinnsson.
Jón Höskuldsson.