REGLUGERÐ
um bólusetningu sauðfjár til varnar garnaveiki.
1. gr.
Bólusetning til varnar garnaveiki skal framkvæmd á öllum ásetningslömbum, ár hvert á landinu öllu að undanteknum eftirtöldum svæðum: Hofshreppur, A-Skaft., Vestur-Skaftafellssýsla öll, svæðið milli varnargirðingar úr Gilsfirði í Bitrufjörð að varnargirðingu úr Kollafirði í Ísafjörð.
Ef ástæða þykir til, getur landbúnaðarráðherra að fengnum tillögum Sauðfjársjúkdómanefndar og yfirdýralæknis, fyrirskipað bólusetningu í sama skyni á svæðum, þar sem ekki er bólusett nú, einnig á eldra fé en lömbum og á öðrum tíma en almennt gildir.
2. gr.
Bólusetning skal fara fram á tímabilinu 15. september til 31. desember ár hvert.
3. gr.
Sýslumenn eða lögreglustjórar skulu, hver í sínu umdæmi og í samráði við Sauðfjársjúkdómanefnd, skipa eftirlitsmenn með framkvæmd bólusetningarinnar. Starfið er uppsegjanlegt af beggja hálfu n:eð þriggja mánaða fyrirvara miðað við 15. september ár hvert. Skipun framlengist sjálfkrafa til eins árs í senn, ef hvorugur segir upp.
Eftirlitsmenn skulu í samráði við hreppsnefndir (bæjarstjórnir) útnefna bólusetningarmenn, einn til tvo í hverjum hreppi eða bæjarfélagi. Heimilt skal að ráða fleiri bólusetningarmenn, ef bólusettir eru margir aldursflokkar sauðfjár sama ár t. d., þegar bólusetning er hafin á nýju svæði. Einnig er heimilt að sami maður bólusetji fé í fleiri hreppum, ef hentara þykir að dómi eftirlitsmanns.
4. gr.
Eftirlitsmenn skulu hlutast til um, að nægilegt bóluefni sé ætíð fyrir hendi, þegar bólusetning skal fara fram, einnig viðhlítandi útbúnaður til bólusetningar.
5. gr.
Sveitarstjórnum er skylt i samáði við eftirlitsmenn, að láta bólusetningarmenn framkvæma skoðun á bólusettu fé til könnunar á árangri bólusetningar um það bil mánuði eftir bólusetningu. Komi i ljós, að eigi séu finnanleg merki eftir fyrri bólusetningu, skulu þær kindur bólusettar svo fljótt sem verða má.
Eftirlitsmenn skulu safna skýrslum frá bólusetningarmönnum um framkvæmd bólusetningar og endurbólusetningar og senda þær Sauðfjársjúkdómanefnd að því loknu.
6. gr.
Nú hefur fjáreigandi af einhverjum ástæðum ekki látið bólusetja ásetningslömb eða annað fé sitt, sem skylt er að bólusetja innan tilskilins tíma og skal þá oddviti (bæjarstjóri) gera eftirlitsmanni aðvart. Skal þá eftirlitsmaður í samráði við lögreglustjóra gera ráðstafanir til þess að féð verði bólusett á kostnað eigenda eða umráðamanna, eins fljótt og við verður komið.
7. gr.
Þóknun fyrir starf eftirlitsmanns skal greiða að hálfu úr sýslusjóði (bæjarsjóði) og að hálfu úr ríkissjóði (Sauðfjársjúkdómanefnd).
Sauðfjársjúkdómanefnd ákveður þóknun til eftirlitsmanna og úrskurðar ferðakostnaðarreikninga þeirra. Bóluefni, útbúnað til bólusetningar og kaup bólusetningarmanna skal greiða úr viðkomandi sveitarsjóði (bæjarsjóði), en þeim kostnaði má síðan deila niður á fjáreigendur í hlutfalli við bólusett fé hverju sinni.
8. gr.
Tilraunastöðin á Keldum skal veita nauðsynlegar upplýsingar um framkvæmd bólusetningarinnar og meðferð fjárins að henni lokinni.
Ákvæði til bráðabirgða:
1. Allt ásetningsfé skal bólusett gegn garnaveiki í Reykjafjarðarhreppi í N-Ísafjarðarsýslu nú þegar.
2. Í öllum öðrum hreppum varnarhólfsins vestan varnargirðingar úr Kollafirði í Ísafjörð skulu ásetningslömb og fé á öðrum vetri bólusett gegn garnaveiki, svo fljótt sem auðið er, og eigi síðar en 31. janúar 1977.
9. gr.
Brot gegn ákvæðum þessarar reglugerðar varða refsingu samkvæmt lögum nr. 23 10. mars 1956. Reglugerðin er sett skv. 44. gr. þeirra laga og öðlast þegar gildi og jafnframt er fallin úr gildi reglugerð nr. 207 30. september 1966, ennfremur tilkynningar og auglýsingar um bólusetningu sauðfjár til varnar garnaveiki, áður útgefnar.
Landbúnaðarráðuneytið, 22. nóvember .976.
Halldór E. Sigurðsson.
Haukur Jörundarson.