REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 188/1988 um slátrun,
mat og meðferð sláturafurða, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 3. tl. 18. gr. reglugerðarinnar, sbr. breytingu með 2. gr. rg. nr. 118/1994, bætist nýr bókstafsliður, d-liður, svohljóðandi:
d. Heimilt er að auðkenna skrokka sem metnir eru í vaxtarlagsflokk I og fituflokk M (UNIM) með merkinu + (UNIM+), ef kjötið ber augljós merki góðrar fóðrunar.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 30 28. apríl 1966 um meðferð, skoðun og mat á sláturafurðum og öðlast gildi þegar í stað.
Landbúnaðarráðuneytinu, 5. september 1997.
F. h. r.
Guðmundur Sigþórsson.
Jón Höskuldsson.