Landbúnaðarráðuneyti

522/1996

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 422/1996 um útflutning á kindakjöti. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 422/1996 um útflutning á kindakjöti.

 

1. gr.

                Aftan við orðin "... í ágúst 1996", í a-lið 2. gr. reglugerðarinnar, kemur: ... þó að lágmarki 180 kg.

 

2. gr.

                3. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

 

3. gr.

                Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum nr. 99/1993, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

 

Landbúnaðarráðuneytinu, 30. september 1996.

 

F. h. r.

Guðmundur Sigþórsson.

Jón Höskuldsson.

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica