1329/2022
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 935/2004, um innflutning gæludýra, annarra en hunda og katta, og hundasæðis.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. reglugerðarinnar:
- 1. mgr. verður svohljóðandi:
Innflutningur á fersku kældu hundasæði eða djúpfrystu hundasæði í þar til gerðum ampúlum eða stráum er heimill að uppfylltum neðangreindum skilyrðum.
- ii-liður b-liðar 8. tl. 3. mgr. sem ber heitið Bólusetning gegn hundainflúensu (e. Canine influenza virus) fellur brott.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, ásamt síðari breytingum, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, ásamt síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 8. nóvember 2022.
Svandís Svavarsdóttir.