1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 194/2021, frá 9. júlí 2021, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/415 frá 8. mars 2021 um breytingu á tilskipunum ráðsins 66/401/EBE og 66/402/EBE til þess að aðlaga flokkunarfræðilega hópa og heiti tiltekinna tegunda fræs og illgresis að þróun á sviði vísinda- og tækniþekkingar. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, frá 2. september 2021, bls. 91.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. nóvember 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.