1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 763/2013 fellur undir 11. viðauka reglugerðar nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.
3. gr.
9. viðauka við reglugerð nr. 301/1995, með síðari breytingum, er breytt í samræmi við viðauka reglugerðar þessarar. Viðaukinn er birtur með reglugerð þessari.
4. gr.
Að því er varðar athuganir, sem hefjast fyrir 1. júlí 2014, er heimilt að beita reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru, með síðari breytingum, eins og hún var fyrir gildistöku reglugerðar þessarar.
5. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
6. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr., 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Hún er jafnframt sett til innleiðingar á framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2013/57/ESB um breytingu á tilskipunum 2003/90/EB og 2003/91/EB um framkvæmdarráðstafanir með tilliti til 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/53/EB og 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/55/EB, í þeirri röð, að því er varðar þá eiginleika sem athugun skal að lágmarki taka til og lágmarksskilyrði vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna og grænmetistegunda í landbúnaði, sem tekin var inn í III. kafla I. viðauka við EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 35/2014, frá 9. apríl 2014.
8. gr.
Reglugerðin tekur þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. apríl 2014. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Halldór Runólfsson. |
Eggert Ólafsson.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)