1. gr.
9. viðauka við reglugerð nr. 301/1995, með síðari breytingum, er breytt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar.
2. gr.
Að því er varðar athuganir, sem hófust fyrir 1. janúar 2014, er heimilt að beita reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru, með síðari breytingum, eins og hún var fyrir gildistöku þessarar reglugerðar.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2012/8/ESB um breytingu á tilskipun 2003/90/EB um framkvæmdarráðstafanir með tilliti til 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/53/EB að því er varðar þá eiginleika sem athugun skal að lágmarki taka til og lágmarksskilyrða vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna í landbúnaði, sem var tekin inn í III. kafla I. viðauka við EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 54/2013 frá 4. maí 2013, og til innleiðingar á framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2012/44/ESB um breytingu á tilskipunum 2003/90/EB og 2003/91/EB um framkvæmdarráðstafanir með tilliti til 7. gr. tilskipana ráðsins 2002/53/EB og 2002/55/EB að því er varðar þá eiginleika sem athugun skal að lágmarki taka til og lágmarksskilyrði vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna í landbúnaði og grænmetistegunda, sem var tekin inn í III. kafla I. viðauka við EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2013 frá 15. júní 2013.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin tekur þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. október 2013. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Halldór Runólfsson. |
Eggert Ólafsson.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)