1. gr.
8. gr. reglugerðar nr. 881/2010 um (3.) breytingu á reglugerð nr. 820/2007 um meðferð og nýtingu á slátur- og dýraleifum orðast svo:
Reglugerðin öðlast þegar gildi. Þó taka ákvæði 5. og 6. gr. reglugerðarinnar ekki gildi fyrr en 1. janúar 2012. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 96/1997 um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
2. gr.
Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 397/2011 um (4.) breytingu á reglugerð nr. 820/2007 um meðferð og nýtingu á slátur- og dýraleifum. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 96/1997 um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. október 2011.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.