1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi hér á landi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 2/2009 frá 6. febrúar 2009 öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:
A. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 163/2008 frá 22. febrúar 2008 um leyfi fyrir efnablöndunni lantankarbónatoktahýdrati (Lantharenol) sem aukefni í fóðri.
B. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 164/2008 frá 22. febrúar 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1444/2006 að því er varðar lágmarksinnihald aukefnisins Bacillus subtilis C-3102 (Calsporin) í fóðri.
C. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 165/2008 frá 22. febrúar 2008 um leyfi fyrir nýrri notkun á 3-fýtasa (Natuphos) sem aukefni í fóðri.
D. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 166/2008 frá 22. febrúar 2008 um leyfi fyrir nýrri notkun á blöndunni Bacillus cereus var. toyoi (Toyocerin) sem aukefni í fóðri.
E. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 167/2008 frá 22. febrúar 2008 um nýtt leyfi til tíu ára til að nota hníslalyf sem aukefni í fóðri.
F. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 209/2008 frá 6. mars 2008 um leyfi fyrir nýrri notkun á Saccharomyces cerevisiae (Biosaf Sc 47) sem aukefni í fóðri.
2. gr.
Um aukefni samkvæmt ofangreindum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar.
3. gr.
Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB) eru birtar sem fylgiskjöl A, B, C, D, E og F við reglugerð þessa.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. júní 2009.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)