Innviðaráðuneyti

1356/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 340/2015 um gagnatengingaþjónustu í samevrópska loftrýminu.

1. gr.

Innleiðing.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1170 frá 8. júlí 2019 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (EB) nr. 29/2009 um kröfur um gagnateng­inga­þjónustu fyrir samevrópska loftrýmið, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 568.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/208 frá 14. febrúar 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 29/2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir sam­evrópska loftrýmið, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 794.

 

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 188. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 21. nóvember 2024.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica