Innviðaráðuneyti

1355/2024

Reglugerð um regluramma fyrir U-rýmis loftrými.

1. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að mæla fyrir um reglur og verklag fyrir örugga starfrækslu ómannaðra loftfarskerfa (UA-kerfa) í U-rýmis loftrými (einnig kallað U-rými), fyrir örugga sam­þættingu UA-kerfa við aðra starfsemi í loftrýminu og fyrir veitingu U-rýmis þjónustu.

 

2. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/664 frá 22. apríl 2021 um regluramma fyrir U-rými, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 943-965.

 

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 188. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 21. nóvember 2024.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica