741/2022
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 666/2001 um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum, með síðari breytingum.
1. gr.
Í stað a-liðar 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar, koma tveir nýir stafliðir, svohljóðandi og breytist röð stafliða til samræmis:
a) ný farþegaskip;
b) gömul farþegaskip sem eru 24 metrar að lengd eða lengri;
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað "Hafsvæði, þar sem landhnitin eru hvergi meira en 5 sjómílur frá strandlínunni, miðað við meðalflóðhæð, en er utan hafsvæðis D" í 1. mgr. 4. gr. komi: Hafsvæði þar sem fjarlægð að vari er aldrei meira en 15 mílur og fjarlægð að strandlínu þar sem skipreika fólk getur lent aldrei meiri en 5 mílur, en er utan hafsvæðis D.
- Í stað "Hafsvæði þar sem landhnitin eru aldrei meira en 3 sjómílur frá strandlínunni, miðað við meðalflóðhæð" í 1. mgr. 4. gr. komi: Hafsvæði þar sem fjarlægð að vari er aldrei meiri en 6 mílur og fjarlægð að strandlínu þar sem skipreika fólk getur lent aldrei meira en 3 mílur.
- Við 4. gr. bætist ný mgr., 5. mgr., svohljóðandi: Þegar ölduspá Vegagerðarinnar sýnir að aðstæður verði þann dag það hagfelldar að samræmist skilgreiningu 1. mgr. á tilteknu svæði er farþegaskipi þrátt fyrir skilgreind svæði fyrir tímabil í II. viðauka heimilt að miða við rýmra farsvið, þó aldrei meira en einu tímabili út fyrir það tímabil sem er í gildi, sé úthald styttra en 5 klst.
3. gr.
Í stað II. viðauka kemur nýr II. viðauki, sem er birtur með reglugerð þessari.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 41. gr. skipalaga nr. 66/2021 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 7. júní 2022.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)