1. gr.
Hvarvetna þar sem heitið "Lottó 5/38" kemur fyrir í reglugerðinni komi: Lottó 5/40.
2. gr.
Í stað orðanna "Víkingalottói" í liðum 3.10, 4.2, 5.2, 5.2.1 á tveimur stöðum og 9.1 komi: Víkingalottó.
3. gr.
Í stað orðanna "Íþróttasambands Íslands" í 1. gr. lið 1.1 komi: Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
4. gr.
2. gr. liður 2.1 breytist þannig að í stað "Dansk Tipstjeneste A/S" komi: Danske Spil A/S.
5. gr.
Í 6. gr. breytast tölfræðilegar vinningslíkur Lottó 5/40 og verða svohljóðandi:
Lottó 5/40: |
|
Fimm aðaltölur |
1: 658.008 |
Fjórar aðaltölur og bónustala |
1:131.602 |
Fjórar aðaltölur |
1: 3.760 |
Þrjár aðaltölur |
1: 111 |
Tvær aðaltölur og bónustala |
1: 117 |
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26 2. maí 1986, sbr. lög nr. 126 16. desember 2003, öðlast gildi þegar í stað. Þó öðlast breyting samkvæmt 1. gr. ekki gildi fyrr en 11. maí 2008.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 10. mars 2008.
F. h. r.
Þorsteinn Geirsson.
Hjalti Zóphóníasson.