1357/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara nr. 237/2014.
1. gr.
Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1020 frá 24. maí 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar neyðarsjúkraflug með þyrlu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 290/2023 frá 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 23. nóvember 2023, bls. 142-156.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 19. nóvember 2024.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.