281/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.
1. gr.
Við 6. gr. reglugerðarinnar bætast nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1975 frá 14. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar flugrekstrarkröfur um svifflugur og rafrænar flugtöskur, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 485-495.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/133 frá 28. janúar 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu á nýjum viðbótarlofthæfiforskriftum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 534-538.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1384 frá 24. júlí 2019 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 965/2012 og (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar notkun loftfara, sem eru skráð á flugrekandaskírteini, í starfrækslu sem er ekki í ábataskyni og í sérstakri starfrækslu, ákvörðun rekstrarlegra krafna í tengslum við framkvæmd reynsluflugs vegna viðhalds, ákvörðun reglna um starfrækslu sem er ekki í ábataskyni þar sem öryggis- og þjónustuliðum um borð hefur verið fækkað og innleiðingu ritstjórnarlegra uppfærslna varðandi kröfur um flugrekstur, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 676-710.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1387 frá 1. ágúst 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur um útreikninga á afkastagetu flugvélar við lendingu og viðmiðin til að meta ástand yfirborðs flugbrautar, uppfærslu á tilteknum búnaði og kröfum sem varða öryggi loftfara sem og starfrækslu án þess að hafa undir höndum fjarflugsleyfi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 711-733.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1176 frá 7. ágúst 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1387 að því er varðar frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19-heimsfaraldurinn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 941-942.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/97 frá 28. janúar 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1033-1038.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1296 frá 4. ágúst 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur um gerð eldsneytis-/orkuáætlunar og stjórnun eldsneytis-/orkunotkunar og að því er varðar kröfur um stuðningsáætlanir og sálrænt mat á flugáhöfn sem og skimanir fyrir geðvirkum efnum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 971-994.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2237 frá 15. desember 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur varðandi starfrækslu í skertu skyggni og varðandi þjálfun og próf fyrir flugliða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 119/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 995-1030.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1254 frá 19. júlí 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 128/2023 frá frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 407-417.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2203 frá 11. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar gildissvið krafnanna um staðsetningu loftfars í nauð, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 401-402.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/217 frá 1. febrúar 2023 um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar ósamræmi í kröfum sem innleiddar voru með framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1387 og reglugerðum (ESB) 2021/1296 og (ESB) 2021/2237, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 187/2023 frá 5. júlí 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68 frá 21. september 2023, bls. 79-81.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 72. gr., 73. gr., 83. gr., 84. gr., 93. gr. og 115. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Með þessari reglugerð fellur samhliða úr gildi reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, nr. 582/2022.
Innviðaráðuneytinu, 19. febrúar 2024.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Reglugerð sem fellur brott: