1. gr.
Í stað orðanna "í Vikinglottó kr. 110 og í EuroJackpot 300 kr." í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: í Vikinglottó kr. 115 og í EuroJackpot 310 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26/1986, öðlast gildi 29. mars 2023 hvað varðar Eurojackpot og 30. mars 2023 hvað varðar Vikinglottó.
Dómsmálaráðuneytinu, 21. mars 2023.
Jón Gunnarsson.
Haukur Guðmundsson.