582/2022
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Við 6. gr. reglugerðarinnar bætast nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/133 frá 28. janúar 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu á nýjum viðbótarlofthæfiforskriftum.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1384 frá 24. júlí 2019 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 965/2012 og (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar notkun loftfara sem eru skráð á flugrekandaskírteini, í starfrækslu sem er ekki í ábataskyni og í sérstakri starfrækslu, ákvörðun rekstrarlegra krafna í tengslum við framkvæmd reynsluflugs vegna viðhalds, ákvörðun reglna um starfrækslu sem er ekki í ábataskyni þar sem öryggis- og þjónustuliðum um borð hefur verið fækkað og innleiðingu ritstjórnarlegra uppfærslna varðandi kröfur um flugrekstur.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1387 frá 1. ágúst 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur um útreikninga á afkastagetu flugvélar við lendingu og viðmiðin til að meta ástand yfirborðs flugbrautar, uppfærslu á tilteknum búnaði og kröfum sem varða öryggi loftfara sem og starfrækslu án þess að hafa undir höndum fjarflugsleyfi.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1176 frá 7. ágúst 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1387 að því er varðar frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19-heimsfaraldurinn.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/97 frá 28. janúar 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna.
2. gr.
Reglugerðir (ESB) 2019/133, (ESB) 2019/1384, (ESB) 2019/1387, (ESB) 2020/1176 og (ESB) 2021/97, sem nefndar eru í 1. gr., eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., 28. gr. e, 28. gr. f, 80. gr. og 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 5. maí 2022.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)