623/2021
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 180/2014 um áhöfn í almenningsflugi.
1. gr.
Innleiðing.
Við 11. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2193 frá 16. desember 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar kröfur um hæfi og þjálfunaraðferðir fyrir flugliða og að því er varðar tilkynningu atvika í almenningsflugi og greiningu og eftirfylgni með þeim, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 150/2021 frá 23. apríl 2021, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 271.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 47. gr., 47. gr. a. og 31. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 28. maí 2021.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.