Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

468/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 180/2014 um áhöfn í almenningsflugi.

1. gr.

Innleiðing.

Við 11. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1119 frá 31. júlí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar yfirlýst þjálfunarfyrirtæki, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 315/2019 frá 13. desember 2019, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 30. janúar 2020, bls. 381.

 

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. b, 31. gr. og 32. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 20. maí 2020.

 

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica